Innskráning í Karellen
news

Bingó, bingó 17. apríl kl. 18-20 í Garðaskóla

09. 04. 2018

Foreldrafélag Barnaskólans í Garðabæ stendur fyrir skemmtilegu bingókvöldi sem haldið verður í Garðaskóla þriðjudaginn 17. apríl frá kl.18-20, mikilvægt að taka daginn frá! Við ætlum að eiga frábæra stund saman og allir eru velkomnir. Frábærir og fjölbreyttir vinningar: Boðsmiðar í Lazertag, Kaffi frá Kaffitár, Kaffipakkar frá Te og Kaffi, vörur frá Cintamani, Mjólkursamsölunni, Tulipop, 66 gráður Norður, Arion banka, Íslandsbanka, Bláa lóninu, Keramik hönnun, gjafabréf í Igló+Indí, ís frá Vesturbæjarís, klippikort frá Johansen Delí, fjölskylduferð í Íshellinnn o.fl. Allur ágóði er hluti af fjáröflun fyrir okkar frábæru vorferð sem verður í maí.

© 2016 - Karellen