Í dag lauk dásamlegri smiðjuviku með allskyns tilraunum, dansi, fróðleik, kryddi, málverkum, brauðbakstri, spuna, útivist, fleiru og fleiru - og nú tekur dymbilvikan við. Fimm ára börn eru í skólanum fram á skírdag sem og börnin sem sækja Frístund. Við hittumst kát á ný þriðjudaginn 3. apríl og óskum öllum gleðilegra páska.