Innskráning í Karellen
news

Ávinningur þess að stunda íþróttir með íþróttafélagi

22. 03. 2023

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) vekja athygli á bæklingi sem gefinn hefur verið út á tíu tungumálum um ávinning þess að stunda íþróttir með íþróttafélagi. Bæklingurinn er ætlaður foreldrum barna af erlendum uppruna, en rannsóknir hafa sýnt að þátttaka þessara barna er um helmingi minni en barna af heimilum þar sem töluð er íslenska.

Bæklingana er bæði hægt að nálgast í rafrænu formi á heimasíðum samtakanna www.isi.is og www.umfi.is en einnig í prentuðu formi á skrifstofum þeirra. Bæklingarnir eru til á arabísku, ensku, filippseysku, íslensku, litháísku, pólsku, spænsku, taílensku, úkraínsku og á víetnömsku. Spænska útgáfan bættist við í fyrra og nýjasta útgáfan á úkraínsku var að bætast við.

Það er von Íþrótta- og ólympíusambands Íslands að í sameiningu takist okkur að fjölga börnum af erlendum uppruna í íþróttastarfi. Þetta er stöðug vinna og talsverð áskorun, en starfsfólk sambandsins er þeirrar skoðunar að þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi geti auðveldað börnum að eignast vini og komast betur inn í íslenskt samfélag.

Hér fyrir neðan eru svo tenglar á bæklingana á rafrænu formi.

Arabíska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertu%20me%C3%B0%20-%20Arab%C3%ADska?=

Enska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_enska_web.pdf?=

Filippseyska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_filipino_web.pdf?=

Íslenska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_isl%20-%20Copy%20(2).pdf?=

Litháíska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_Lith%C3%A1enska_web.pdf?=

Pólska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_poslka_web.pdf?=

Spænska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_Sp%c3%a6nska.pdf

Taílenska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertumed_tae_web.pdf?=

Úkraínska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertu%20me%c3%b0%20-%20%c3%9akra%c3%adnska%20-%20Copy%20(1).pdf

Víetnamska https://isi.is/library/Skrar/Fraedslusvid/Fraedslubaeklingar/Vertu%20me%C3%B0%20-%20V%C3%ADetnamska?=

© 2016 - Karellen