Innskráning í Karellen
news

Umhyggja í heimsóknum 5 ára barna á Litlu-Ása

15. 03. 2018

Í tilefni umhyggjuviku í vináttulotu fóru 5 ára börnin í heimsókn á Litlu-Ása og fengu að vera gestir hjá ungu börnunum. Ýmis verkefni voru unnin eins og til dæmis að hjálpa til við að klæða börnin í útiföt, gefa þeim ávexti, leika við þau og syngja saman. Yngri börnin voru uppnumin af hrifningu með þessa flottu gesti. Einnig voru mörg 5 ára börn og kennarar á Litlu Ásum glöð að hittast á ný.




© 2016 - Karellen