Innskráning í Karellen
news

Jólagjöf 9 ára barna

06. 01. 2024

Í haust ákváðu börnin á 9 ára kjarna að jólagjöfin til foreldra þeirra yrði handsaumaður púði.

Það krefst mikillar þolinmæði og þrautseigju að sauma púða. Börnin hönnuðu ýmist sitt eigið mynstur eða völdu fallega uppskrift til að sauma eftir. Þau notuðu krosssaum til að útbúa mynstrið sem þau höfðu teiknað upp og fylltu svo koddana með troði sem þau saumuðu svo saman í saumavél.

Það var dásamlegt að fylgjast með hópnum njóta sín við að sauma af mikilli natni og dugnaði.

© 2016 - Karellen